Lögð fram fyrirspurn Búseta hsf. dags. 21. júlí 2011 um fjölgun íbúða á lóðum nr. 2-34 við Ísleifsgötu skv. uppdráttum, dags. 20. júlí 2011. Einnig lagt fram bréf framkvæmdastjóra Búseta, dags. 20. júlí 2011. Ennfremur lögð fram umsögn teiknistofu Gylfa Guðjónssonar dags. 3. ágúst 2011.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt eða auglýst þegar hún berst.