Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 10. júní 2011 varðandi breytingu á skilmálum Reynisvatnsás vegna lóðarinnar nr. 98 við Haukdælabraut. Í breytingunni felst að húsagerð á lóðinni nr. 98 við Haukdælabraut er breytt úr E-2A í(tveggja hæða hús) í Ep-Ia (pallað hús) Við breytinguna verða öll hús við götuna (botnlangan) einnar hæðar að götu. Tillagan var auglýst frá 6. júlí til og með 17. ágúst 2011. Engar athugasemdir bárust.