Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktri endurbyggingu, sjá erindi BN046189, - flóttastigi og svalir á bakhlið eru felld út, útbúinn nýr flóttastigi af þaki Hverfisgötu 30 og innréttuð 7 gistiherbergi og setustofa, sem verða hluti stærra hótels á Hljómalindarreit) í húsi á lóð nr. 28 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2014.