Á fundi skipulagsfulltrúa 22. janúar 2016 var lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 21. janúar 2016, þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn
Kaffitárs ehf.
um rekstrarleyfi í flokki II fyrir veitingastaðinn Kaffitár að Hverfisgötu 15. Sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 23:00 alla daga. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29.janúar 2016.