Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2., 3. og rishæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 25 við Ásvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 13. september 2019 til og með 11. október 2019. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir ódagsett samþykki allra húseigenda áritað á uppdrátt dags. 11. júlí 2019, undirritað umboð eiganda íbúðar 0301 dags. 11. júní 2019 og umboð eiganda íbúðar 0001, dags. 11. júní 2019 auk skýrslu burðarþolshönnuðar dags. 14. júlí 2019. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. ágúst 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019. Gjald kr. 11.200