Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. ágúst 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi til að setja tvo kvisti á norðaustur hluta þaks á húsi á lóð nr. 38 við Grandaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. ágúst 2021.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 22. júlí 2021 fylgir erindi. Stækkun er: xx,x ferm., xx,x rúmm. Gjald kr.12.100