Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. september 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja 4-6 hæða steinsteypt fjölbýlishús, klætt málmklæðningu, með alls 47 íbúðum, atvinnurými á hluta jarðhæðar og bílakjallara, mhl. 02, á lóð nr. 1 við Háaleitisbraut. Stærðir: 7.329.4 ferm., 21.079.7 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.252.1 endurútgefið 22. febrúar 2010, og lóðablað 1.252.1 dags. 29. júlí 2021. Gjald kr. 12.100