Lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
, mótt. 31. maí 2017, ásamt tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Háaleitisbraut. Í tillögunni felst að bætt verði við tveimur nýjum byggingarreitum á lóðinni. Á öðrum reitnum næst Kringlumýrarbraut verður heimilt að reisa skrifstofuhús. Hinn byggingarreiturinn verður staðsettur á horni Skipholts og Bolholts, en þar verður heimilt að reisa sex hæða íbúðarhús, kvöð er um að efsta hæðin verði inndregin. Bílastæðum verður fjölgað og byggingarmagn og nýtingarhlutfall hækkar sem þessu nemur, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
, dags. 31. maí 2017.