Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
, mótt. 9. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 17 við Austurstræti. Í breytingunni felst að stækka inndregnu 6. hæð til suðurs þar sem í dag eru svalir, gluggafrontur verður framlengdur til að hæðir 2-6 eru byggðar inn í ramma og 7. hæð inndregin með svölum, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
, dags. 1. febrúar 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.