Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi byggingarfulltrúa 16. september 2016 var lögð fram fyrirspurn Reynis Sigurðssonar og Sigurðar Reynissonar, mótt. 7. september 2016, um að breyta 1. hæð hússins nr. 4 við Ólafsgeisla í séreign (íbúð 0101 og svalir 0102). Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. september 2016.