Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. janúar 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að starfrækja veitingastað í flokki II sem sérhæfir sig í sölu á kaffi, safadrykkjum og samlokum á fyrstu hæð hússins nr. 11 við Bankastræti. Umsögn skipulagsfulltrúa vegna fyrirspurnarerindis SN130483 dags. 17. október 2012 fylgir erindinu.