Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júlí 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að útbúa tvennar svalir á suðurhlið rishæðar og breyta innra skipulagi íbúðar eins og sýnt er á áður samþykktum teikningum af íbúð í risi íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 11 við Bankastræti. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2013.