Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Björn Arnars Haukssonar, mótt. 29. desember 2016, um að setja tengibyggingu á milli húsanna á lóðunum nr. 47 við Hrísateig og 74A við Laugarnesveg, samkvæmt tillögu Magneu Þ. Guðmundsdóttur arkitekts og Evu H. Friðriksdóttur arkitekts, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2017.