breyting á deiliskipulagi
Seljavegur 3A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. ágúst 2021 var lögð fram umsókn Jóns Grétars Ólafssonar f.h. eiganda dags. 28. júlí 2021, varðandi breytingu á deiliskipulagi Framnesreits vegna lóðarinnar nr. 3A við Seljaveg. Í breytingunni felst að heimilað verði að setja utanáliggjandi svalir, samkvæmt uppdr. joni-arkitekta dags. 27. júlí 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi þegar uppfærðir uppdrættir hafa borist fyrir hagsmunaaðilum að Seljavegi 3, 5 og Framnesvegi 8a.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100246 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015127