Lögð fram umsókn Jóns Grétars Ólafssonar f.h. eiganda dags. 28. júlí 2021, varðandi breytingu á deiliskipulagi Framnesreits vegna lóðarinnar nr. 3A við Seljaveg. Í breytingunni felst að heimilað verði að setja utanáliggjandi svalir, samkvæmt uppdr. joni-arkitekta dags. 27. júlí 2021.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.