Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja léttar stálsvalir á suðurhlið allra íbúða ásamt því að færa útitröppur og stækka þannig gryfju að kjallarainngangi íbúðarhúss á lóð nr. 3A við Seljaveg.
Stækkun B- rými: x.xx ferm., x.xx rúmm. Erindi fylgir samþykki íbúðareigenda og umboð til verktaka, sem umsækjanda fyrir þeirra hönd dags. 28. ágúst 2020. Gjald kr. 11.200 Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2021.