Á fundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja og hækka þak, stækka kvist á norðausturhlið, byggja kvist á suðvesturhlið og innrétta herbergi og bað í risi einbýlishúss á lóð nr. 63 við Laufásveg. Einnig er lagt fram minnisblað
Hornsteina arkitekta ehf.
dags. 28. maí 2015. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 22. maí 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015.
Stækkun xx rúmm. Gjald kr. 9.823