Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Friðriks Jónssonar, Gunnars Guðlaugssonar og Önnu Guðjónsdóttur, mótt. 23. febrúar 2016, um að sameina kvisti á bakhlið hússins á lóð nr. 1 við Ystabæ ásamt stækkun á geymslu sem er sambyggð við bílgeymslur, samkvæmt uppdr. Einars Ingimarssonar arkitekts, dags. 11. febrúar 2016. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2016.