Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Mána Darvish Radmanesh dags. 13. nóvember 2019 um rekstur gististaðar í flokki II í húsinu á lóð nr. 8 við Miðtún. Einnig er lögð fram greinargerð Mána Darvish Radmanesh dags. 10. janúar 2020 ásamt uppdrætti. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020.