Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júlí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. júlí 2022 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að anddyri hefur verið stækkað, steyptu svalahandriði skipt út fyrir gler og gluggar síkkaðir á austurhlið neðri hæðar, einnig er sótt um leyfi til þess að saga niður úr glugga á vesturhlið, setja rennihurð, lengja svalir meðfram vesturhlið og gera stoðvegg og steyptar tröppur frá svölum niður garð einbýlishúss á lóð nr. 9 við Langagerði.Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst 2022.