Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að anddyri hefur verið stækkað, steyptu svalahandriði skipt út fyrir gler og gluggar síkkaðir á austurhlið neðri hæðar, einnig er sótt um leyfi til þess að saga niður úr glugga á vesturhlið, setja rennihurð, lengja svalir meðfram vesturhlið og gera stoðvegg og steyptar tröppur frá svölum niður garð einbýlishúss á lóð nr. 9 við Langagerði. Stækkun: 3.1 ferm., xx.x rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.830.2 dags. 10. nóvember 2010 og hæðablað fyrir Langagerði 9-11-13 dags. 18. október 1972 og yfirlit breytinga á A3 afriti af aðalteikningum stimpluðum 27. apríl 1972. Gjald kr. 12.600