Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til að stækka bílskúr að lóðamörkum og fyrir áður gerðri breytingu sem felst í viðbyggingu, frá vesturhorni húss nr. 29 í suður, á lóð nr. 25-31 við Skriðustekk. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. júní 2020.
Stækkun húss: 28,0 ferm., 96,5 rúmm. Stækkun bílskúrs: 11,5 ferm., 59,3 rúmm. Samtals stækkun: 39,5 ferm., 155,8 rúmm. Gjald kr. 11.200