Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að gera kvisti á báðar þekjur hússins, nýjum gluggum og setja svalir á suðurhlið húss á lóð nr. 132 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. maí 2019.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 15., 24. og 28. febrúar 2019, afrit af skráningartöflu dags. 24. október 2018 og bréf til byggingarfulltrúa dags. mars 2019. Stækkun: XX. Gjald kr. 11.200