Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. júlí 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja tvöfaldan bílskúr úr steinsteyptum einingum á lóðinni nr. 32 við Stangarholt.
Samþykki meðeiganda í húsi nr. 30-32 og samþykki nokkurra nágranna (vantar eigendur lóðarinnar nr. 41 við Stórholt) dags. 23. maí 2012 fylgir erindinu. Tölvubréf umsækjanda vegna eigenda lóðarinnar nr. 41 við Stórholt dags. 22. júní 2012 fylgir erindinu.
Stærð: Bílskúr 75,6 ferm. og 229,8 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 19.533