Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tómstundahús og gróðurhús á lóðamörkum í suðaustur og áhaldaskúr og pergólu á baklóð einbýlishúss á lóð nr. 73 við Laufásveg. Tómstundarými, mhl. 02, A-rými: 66,1 ferm., 224,7 rúmm. Gróðurhús/laufskáli, mhl. 03, B-rými: 25,4 ferm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. október 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2021, samþykki lóðarhafa Bergstaðastrætis 78, dags. 11. september 2021 og uppmæling á hæðarpunktum lóðar dags. 19. nóvember 2021. Gjald kr. 12.100