Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn Hugrúnar Þorsteinsdóttur dags. 25. maí 2021 um stækkun hússins á lóð nr. 73 við Laufásveg sem felst í því að gera viðbyggingu á suðvesturhluta lóðar. Einnig er óskað eftir að reisa pergólu á lóðinni, gróðurhús, áhaldaskúr og skjólgirðingu, samkvæmt uppdr. M11 Teiknistofu dags. 25. maí 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.