Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 1. hæð og rishæð, ásamt áður gerðum breytingum á innra skipulagi íbúðar 0101, í fjölbýlishúsi á lóð nr. 7 við Bjarnarstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.
Samþykki meðeigenda fylgir. Gjald kr. 10.100