Lögð fram umsókn Valdimars Kristinssonar, mótt. 17. mars 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 31 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að rífa niður núverandi hús á lóð og byggja nýtt tveggja hæða hús ásamt kjallara án bílgeymslu, fjölgun íbúða í fimm og fjölgun bílastæða á lóð í fimm, samkvæmt uppdr. Mannvirkjahönnunar, dags. 17. mars 2016.