Lögð fram fyrirspurn Valdimars Kristinssonar, mótt. 15. október 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 31 við Langholtsveg sem felst í að fjarlægja núverandi hús á lóðinni nr. 31 við Langholtsveg og byggja nýtt þriggja hæða fjölbýlishús með 5 íbúðum, án bílageymslu, samkvæmt uppdr. Mannvirkjahönnunar, dags. 27. september 2015.