Lögð fram fyrirspurn Arkitekta Laugavegi 164 ehf., dags. 1. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 31 við Langholtsveg sem felst í stækkun á byggingarreit og fjölgun íbúða úr þremur í fjórar, samkvæmt uppdr. Glámu/Kím, dags. 30. nóvember 2016. Einnig er lagt fram bréf Glámu/Kím ehf., dags. 1. desember 2016.