Á fundi skipulagsfulltrúa 2. október 2015 var lögð fram fyrirspurn Valdimars Kristinssonar, mótt. 28. september 2015, um að rífa niður núverandi hús af lóðinni nr. 31 við Langholtsveg og byggja nýtt þriggja hæða fjölbýlishús með 5 íbúðum, án bílageymslu, samkvæmt tillögu
Mannvirkjahönnunar ehf.
dags. 27. september 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.