Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 9. desember 2016 var lögð fram fyrirspurn Arkitekta Laugavegi 164 ehf., dags. 1. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 31 við Langholtsveg sem felst í stækkun á byggingarreit og fjölgun íbúða úr þremur í fjórar, samkvæmt uppdr. Glámu/Kím, dags. 30. nóvember 2016. Einnig er lagt fram bréf Glámu/Kím ehf., dags. 1. desember 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. janúar 2017.