Á fundi skipulagsstjóra 23. mars 2012 var lögð fram fyrirspurn Arnbjargar Lindu Jóhannsdóttur dags. 16. mars 2012 varðandi hækkun á þaki, setja kvist og innrétta íbúð í risinu ásamt því að setja svalir á húsið á lóð nr. 16 við Grettisgötu, samkvæmt uppdrætti Arkitektur.is ehf. dags. 15. mars 2012. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 30.mars 2012
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað með vísan til umsagnar verkefnisstjóra dags. 30.mars 2012. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.