Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. mars 2017 þar sem sótt er um breytingu á áður samþykktu erindi BN047840 sem felst í að hætt er við að byggja útigeymslu á þaksvölum vinnustofu í risi og þess í stað sótt um að breyta vinnustofu í íbúð sem yrði séreign í húsi á lóð nr. 16 við Grettisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. maí 2017.
Gjald kr. 11.000