Á fundi skipulagsstjóra 1. júlí 2011 var lögð fram fyrirspurn G. Odds Víðissonar dags. 24. júní 2011 varðandi breytta notkun þriðju til fimmtu hæðar hússins nr. 105 við Laugaveg í stúdíóíbúðir.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við uppbyggingu íbúða á efri hæðum eins og heimilaðar eru í deiliskipulagi, enda uppfylli þær ákvæði byggingarreglugerðar um íbúðir.