Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Heiðrúnar Harðardóttur dags. 12. desember 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, svæði 1 vegna lóðarinnar nr. 55-59 við Kristnibraut. Í breytingunni felst bygging á bílgeymslu við austurmörk lóðarinnar, samkvæmt uppdrætti
Plúsarkitekta ehf.
dags. 29. nóvember 2011. Einnig er lagt fram samþykki Önnu Jóhannsdóttur, Grétars Viðars Grétarssonar og Guðmundar Leifssonar f.h. húsfélaganna að Kristnibraut 55, 57 og 59 ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. janúar til og með 17. febrúar 2012. Engar athugasemdir bárust.