Lagt fram erindi Heiðrúnar Harðardóttur dags. 12. desember 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, svæði 1 vegna lóðarinnar nr. 55-59 við Kristnibraut. Í breytingunni felst bygging á bílgeymslu við austurmörk lóðarinnar, samkvæmt uppdrætti
Plúsarkitekta ehf.
dags. 29. nóvember 2011. Einnig er lagt fram samþykki Önnu Jóhannsdóttur, Grétars Viðars Grétarssonar og Guðmundar Leifssonar f.h. húsfélaganna að Kristnibraut 55, 57 og 59 ódags.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir húsfélögum að Kristnibraut 43-47 og 49-53.