Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. febrúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að gera svalir á suðurhlið íbúðar 0201, síkka glugga til að koma fyrir tvöfaldri svalahurð og setja á létta veggi undir svalir til að skýla aðalinngangi íbúðar 0101 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 47 við Öldugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 25. apríl 2022 til og með 23. maí 2022. Engar athugasemdir bárust.