Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. ágúst 2018 var lögð fram fyrirspurn Hjördísar Sóleyjar Sigurðardóttur dags. 12. júlí 2018 varðandi breytingu á kvisti á suðurhlið hússins á lóð nr. 15 við Bólstaðarhlíð sem felst í að gluggar á kvisti eru síkkaðir og gerðar eru svalir, samkvæmt uppdr. Ydda arkitekta ehf. dags. 6. júlí 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2018.