Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. október 2019 var lögð fram fyrirspurn Krzysztof Muszynski dags. 2. október 2019 um að skipta 2. hæð hússins á lóð nr. 3 við Höfðabakka í 13 herbergi ásamt salernis- og eldhúsaðstöðu. Einnig eru lagðar fram teikningar ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2019.