Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lögð fram tillaga
Yrki arkitekta ehf.
dags. 5. september 2019 varðandi nýtt deiliskipulag fyrir reit sem afmarkast af Laugavegi til norðurs, Bolholti til austurs, Skipholti til suðurs og Laugavegi 174 og Skipholti 31 til vesturs. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á lóðinni Laugavegur 176 vegna fyrirhugaðs hótels, en aðrar lóðir á skipulagsreitnum verða skilgreindar sem óbreyttar lóðir þar sem núverandi ástand er óbreytt, samkvæmt uppdráttum
Yrki arkitekta ehf.
dags. 6. september 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.