Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. júní 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja úr timbri og gleri með koparklæddu timburþaki óeinangraðan og óupphitaðan blómaskála á þaki bílskúrs við einbýlishús á lóð nr. 22 við Vesturbrún. Stærðir stækkun: 14,4 ferm., 37,3 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Vesturbrún 20, 24 og 39.