(fsp) lóðarstækkun, djúpgámar og bílastæði
Selásbraut 98
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 757
10. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. desember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð, þannig að þrjár vinnustofur verði í bakrými og tvö verslunarrými sem snúa að götu, og efri hæð breytt úr verslun og þjónustu í fimm íbúðir á lóð nr. 98 við Selásbraut, Samkvæmt uppdr. Noland arkitekta ehf. ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti embættis byggingarfulltrúa dags. 7. janúar 2019 þar sem umsagnarbeiðni er dregin til baka.
Erindi fylgir afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Afgreitt.