Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. desember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð, þannig að þrjár vinnustofur verði í bakrými og tvö verslunarrými sem snúa að götu, og efri hæð breytt úr verslun og þjónustu í fimm íbúðir á lóð nr. 98 við Selásbraut, Samkvæmt uppdr. Noland arkitekta ehf. ódags. Erindi fylgir afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2019. Gjald kr. 11.200