Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram umsókn Bergþórs Ólafssonar, mótt. 28. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Suður Selás vegna lóðarinnar nr. 98 við Selásbraut. Í breytingunni felst að hækka núverandi byggingu um eina hæð og stækka 1. hæð til vesturs svo gera megi ráð fyrir svölum á 2. og 3. hæð ásamt hjóla- og vagnageymslu fyrir íbúðir, samkvæmt uppdr. A2 arkitektur ehf. dags. 20. febrúar 2017.
Svar
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs Erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.