Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 15. júní 2012 var lögð fram fyrirspurn Ökukennarafélags Íslands dags. 12. júní 2012 varðandi bráðabirgðanotkun á lóð nr. 41 við Borgartún. Ætlunin er að nýta lóðina til sérstakrar ökukennslu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. júní 2012.