Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. maí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja hús, byggja þriggja hæða steinsteypt hús með risi á baklóð, endurinnrétta bakarí og veitingastað á jarðhæð og hótel á efri hæðum, sem verða mun hluti stærra hótels á lóð nr. 36 við Laugaveg. Einnig er sótt um leyfi til að flytja bakhús yfir á lóðina við hliðina þar sem Grettisgata 17 stendur núna. Niðurrif bakhúss, xx ferm., xx rúmm. Flutningshús: xx ferm., xx rúmm. Nýbygging, stækkun: xx ferm., xx rúmm. Heildarstærð, 1.158 ferm., 3.725,8 rúmm. Gjald kr. 9.500