Lögð fram umsókn Sveins Björnssonar, mótt. 3. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðarinnar nr. 11 við Lindargötu. Í breytingunni felst að hækka húsið um ca. 1. metra, byggja viðbyggingu á norðurhlið hússins þar sem komið verður fyrir lyftu- og stigahúsi og breyta notkun hússins úr íbúðarhúsnæði í gistiheimili í flokki IV, samkvæmt uppdr. Ark Studio ehf., dags. 5. nóvember 2015. Einnig er lagt fram bréf Minjastofnunar dags. 22. október 2015.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir breytingu á deiliskipulagi áður en breytingin er samþykkt í auglýsingu samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.