Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Hafsteins Gunnarssonar, mótt. 2. febrúar 2017, um að breyta 1. hæð og kjallara í húsinu á lóð nr. 82 við Langholtsveg í þrjár íbúðir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. mars 2017.