Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júní 2012 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð úr timbri ofan á steinsteypt einbýlishús á lóð nr. 18 við Háuhlíð. Erindi fylgir neikvæð fsp. BN044201, dags. 20. mars 2012. Stækkun: 90,4 ferm., 331,8 ferm. Gjald kr. 8,500 + 28.203
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Háuhlíð 16 og 20 og Hörgshlíð 14 og 16.